Miðstig
Kennsla fyrir Miðstig 2-3,
ágúst-september 2026
Sunnudagar
Hausttímabil: 23. ágúst – 29. september 2026
Kennt í Kramhúsinu á sunnudögum kl. 13:00–14:30
Meginmarkmið kennslu á miðstigi 2-3 er að auka gæði dansins og færni í social dansi, og öðlast meira öryggi í því sem þið hafið lært. Við förum dýpra í grunninn og koregrafisk element, s.s. boleo, sacada, barrida, gancho og fleira. Við leggjum aukna áherslu á tónlistartúlkun, samdans svo og tækni. Vals og/eða milonga er á dagskránni á hverju tímabili.
Verð: (6 vikur) 21.900 á mann
Kennsla fyrir Miðstig 1,
ágúst-sept 2026
þriðjudagar
Miðstig 1 hentar þeim sem hafa lokið þremur byrjendastigum.
Hausttímabil: 25. ágúst – 29. sept 2026.
Kennt í Danshöllinni Mjódd á þriðjudögum kl. 18:30–19:50.
Markmið kennslu á miðstigi er að efla öryggi í því sem nemendur hafa þegar lært og halda áfram að byggja upp skrefabankann. Kynnt verða ný þemu á borð við barrida, gancho og sacada, og lögð áhersla á flæði og tengingu nýrra spora við fyrri þekkingu. Vals og/eða milonga eru á dagskrá á hverju tímabili.
Verð: (6 vikur) 21.900 á mann
