Byrjendur
Nýtt byrjendanámskeið hefst 25. okt. 2026
Kennt í Kramhúsinu, á sunnudögum kl. 16.10-17.30
Ætlað þeim sem hafa aldrei dansað tangó áður eða tekið einn eða fleiri kynningartíma. Námskeiðið stendur í 6 vikur og verður síðasti tími 29. nóvember.
Á fyrsta byrjendanámskeiði leggjum við áherslu á að þið getið dansað strax frá fyrsta degi. Við kennum grunnatriði tangósins og algengustu skref, veitum innsýn inn í hvernig samdans fylgjanda og leiðanda virkar vel og grunnatriði þess að fylgja tónlistinni.
Skráning með dansfélaga.
Verð: (6 vikur) 21.900,- á mann
Vantar þig dansfélaga?
Skráðu þig í þennan Facebook-hóp og auglýstu eftir dansfélaga.
Tango Club Reykjavik partner search
Framhaldsnámskeið 2 fyrir byrjendur hefst 18. október
Kennt í Kramhúsinu, á sunnudögum kl. 14.40-16.00
Fyrir þá sem hafa lokið byrjendur 1 og fyrsta framhaldsnámskeiði fyrir byrjendur. Námskeið stendur í 8 vikur til 6. desember.
Við höldum áfram að byggja upp skrefabankann og leggjum áherslu á að finna flæði í dansinum og að fylgja tónlistinni. Við kennum ný element, s.s, heilan snúning og paradas. Aukin áhersla verður á tækni og líkamsstöðu sem auðveldar okkur dansinn enn frekar.
Skráning með dansfélaga.
Verð: (8 vikur) 29.600,- á mann
