Kennt í Danshöllinni Mjódd á þriðjudögum kl. 20.00-21.30 1. Vetrartímabil: 12. janúar – 23. febrúar (7 vikur) – Páskafrí 23. mars. 2. Vetrartímabil: 2. mars – 20. apríl (7 vikur)
Á advanced stigi leggjum við áherslu á gæði dansins og förum dýpra í grunninn að því markmiði að ná betra flæði og fjölbreytni í dansinum. Gert er ráð fyrir að þátttakerndur hafi góðan grunn og þekki mörg helstu koregrafísku elementin í tangó. Við vinnum með nákvæmni, tækni, breytingar á dynamík og tónlistartúlkun er einnig mikilvægur þáttur í kennslunni. Vals og/eða milonga er á dagskránni á hverju tímabili.