Tæknitímar
Tangótækni fyrir followers með Bryndísi
Næstu tímar:
Verður auglýst síðar…
Bættu tækni þína og þú getur orðið betri dansari. Í þessum tímum vinnum við að betra jafnvægi, stöðugleika og flæði í hreyfingum ásamt nákvæmni í framkvæmd tangóspora og tækni.
Farið er djúpt í grunninn, unnið með hvernig við getum náð betra jafnvægi og meira öryggi í hreyfingum. Við gerum æfingar og stuttar skrefasamsetningar til að ná enn betri tökum á hreyfingunum og æfum einnig nokkrar skrauthreyfingar.
Hentar þeim sem hafa stundað tangó í að minnsta kosti 3 mánuði.
ATH! Þarf ekki partner í tæknitíma
Verð: 4.500,- á tíma, hvert tími er 75 mín.
Tangótækni fyrir leaders með Hany
Næstu tímar:
Verður auglýst síðar…
Bættu tækni þína og þú getur orðið betri dansari. Í þessum tímum vinnum við að betra jafnvægi, stöðugleika og flæði í hreyfingum ásamt nákvæmni í framkvæmd tangóspora og tækni.
Tímarnir eru byggðir upp á grunn – og tækniæfingum með áherslu á leaders-tækni og stuttar skrefasamsetningar. Því betri sem tæknin þín er þegar þú dansar einn, því auðveldara og þægilegra verður að dansa með dansfélaga.
Hentar þeim sem hafa stundað tangó í að minnsta kosti 3 mánuði.
ATH! Þarf ekki partner í tæknitíma
Verð: 4.500,- á tíma, hvert tími er 75 mín.
