Einkatímar

Einkatímar

Einkatímar gefa þér tækifæri til að fá persónulega leiðsögn og vinna markvisst að eigin framförum. Kennslan er sniðin að þinni getu, þínum óskum og markmiðum. Þú færð meiri athygli, nákvæma endurgjöf og tækifæri til að dýpka skilning þinn á tækninni og njóta tangósins enn betur.

Í einkatíma er einn kennari og einn nemandi eða par og stendur í um 55 mín. Hægt að kaupa stakan einkatíma eða klippikort með x5 eða x10 tímum.  

Tímar sem hægt er að velja:
Fimmtudagar kl. 14, 15 eða 16
Föstudagar kl. 14, 15, 16 eða 17
Ef þessir tímar passa þér ekki, sendu tölvupóst á bryndis@tango.is

Verð á einkatímum: 
Stakur tími: 18.500,- (einn nemandi eða par) – verð frá 1. des 2026
x5 tíma klippikort: 87.875,- (5% afsláttur)
x10 tíma klippikort: 166.500,- (10% afsláttur)

Skráningar- og greiðsluskilmálar, breytingar og afbókanir

Einkatímar eru bókaðir hér á heimasíðunni, þar sem þú getur óskað eftir hentugum tíma og dagsetningu samkvæmt þeim valkostum sem þar eru í boði.

Að skráningu lokinni færðu svar með tillögu að tíma og dagsetningu ásamt upplýsingum um greiðslu. Þú þarft að staðfesta tímasetninguna með því að svara tölvupóstinum. Að því loknu er bókunin endanlega frágengin.

Greiða þarf fyrirfram fyrir alla einkatíma, hvort sem um er að ræða stakan tíma eða 5 eða 10 tíma klippikort. Ef þú átt gjafakort skaltu taka það fram í athugasemdareitnum við skráningu.

Ef þú þarft að breyta eða aflýsa bókuðum tíma þarf það að gerast með að minnsta kosti 24 klukkustunda fyrirvara. Ef breyting eða afbókun berst síðar þarf að greiða fyrir tímann.