SKRÁNING
Skráning hér
Fylltu út formið og veldu síðan senda. Við munum svara þér við fyrsta tækifæri með staðfestingu á skráningu og upplýsingum um greiðslu.
Vinsamlegast skrifaðu í skilaboðadálkinn ef þú óskar að skrá bæði þig og dansfélaga þinn í sömu skráningu.
Skráningar- og greiðsluskilmálar
Skráning með partner.
Skráning telst ekki gild fyrr en bæði eru skráð.
Skráning er bindandi.
Námskeið skulu greidd áður en kennslutímabil hefst. Námskeiðsgjöld eru ekki endurgreidd.
Uppbótartímar
Ef einhver missir af tíma vegna utanlandsferða eða annars bjóðum við upp á möguleika á að bæta upp tíma í öðrum hópi innan sama kennslutímabils. Til að nýta þann möguleika þarf að láta okkur vita svo hægt sé að skipuleggja tíma og hóp sem hentar í hverju tilfelli. Ef annar í pari kemst ekki eru tveir kostir, annað hvort að fá afleysara á sama getustigi til að taka tímann fyrir þann sem ekki kemst, eða bæði í parinu sleppa tímanum og koma saman í uppbótartíma í öðrum hópi.
ATH! Ekki er hægt að fá bæði afleysara og uppbótartíma fyrir sama skiptið. Sá sem er skráður í hópinn er ábyrgur fyrir greiðslu fyrir allt tímabilið.
Ekki er hægt að taka uppbótartíma á einstökum námskeiðum.
Ef þú hefur spurningar er þér velkomið að hafa samband með tölvupósti á netfang bryndis@tango.is
Vantar þig partner?
Smelltu hér
