Byrjendur/ Beginners
ENGLISH BELOW
Helgarnámskeið fyrir byrjendur, 2.-4. maí 2025
Lærðu grunnatriði í tangó og algengustu skref á þremur dögum. Þétt og skemmtilegt námskeið þar sem kennt er tvo tíma á dag í þrjá daga. Kennsla fer fram í Kramhúsinu, fös 2. og lau 3 maí kl. 17-19 og sun. 4. maí, kl. 16.30-18.30
Í byrjendakennslu leggjum við áherslu á að þið getið dansað strax frá fyrsta degi. Við kennum grunnatriði tangósins og algengustu skref, veitum innsýn inn í hvernig samdans fylgjanda og leiðanda virkar vel og grunnatriði þess að fylgja tónlistinni. Ætlað þeim sem hafa aldrei dansað tangó áður eða tekið einn eða fleiri kynningartíma.
Skráning með dansfélaga.
Verð: 14.900,- á mann
Skráðu þig hér
Weekend course for Beginners, 2.-4. of May 2025
Learn the basics of tango and the most common steps in just three days. This intensive course offers two-hour lessons each day for three days. Lessons take place at Kramhúsið on Friday 2nd, Saturday 3rd at 17-19, and Sunday 4th of May at 16.30-18.30
In our beginner lessons, we emphasize that you can start dancing from the very first day. We teach the basics of tango and the most common steps, provide insight into how the follower and leader roles work best, and cover the basics of following the music. This course is intended for those who have never danced tango before or have only taken one or two introductory lessons.
Registration with a partner.
Price: ISK 14.900 per person
Vikulegir tímar fyrir byrjendur – Weekly courses for beginners
Byrjendanámskeið eru kennd á þremur stigum, byrjendur 1, 2 og 3. Þegar því er lokið færast nemendur upp á intermediate level. Lágmarks þátttaka fyrir hvert stig miðast við 6 pör. Stundum eru byrjendur 2 og 3 sameinaðir í einn hóp og þá er kennslan löguð að þeim sem eru í hópnum.
Byrjendur 1
Ætlað þeim sem aldrei hafa dansað tangó áður eða farið í einn eða fleiri prufutíma. Við leggjum áherslu á að þið getið dansað strax frá fyrsta degi. Við kennum grunnatriði og algengustu skref, gefum innsýn í hvernig samskipti fylgjenda og leiðara virka og hvernig á að fylgja tónlistinni.
Byrjendur 2
Er fyrir þá sem hafa lokið fyrsta byrjendanámskeiði. Hentar einnig þeim sem hafa lært tangó áður og langar að rifja upp. Við höldum áfram með grunnatriði og lærum fleiri skref. Einnig kennum við snúningshreyfingar, t.d. hálfan og heilan snúning. Lögð er áhersla á endurtekningar til að öðlast meira öryggi í að spinna með grunnskrefin. Á þessu stigi kynnum við einnig vals og milonga.
Byrjendur 3
Við höldum við áfram að byggja upp skrefabankann, ásamt því að endurtaka það sem þegar er lært. Áhersla er lögð á að fylgja tónlistinni í dansinum, svo og tækni og líkamsstöðu sem gerir dansinn auðveldari.
Kennslutímabil apríl – júní 2025
Byrjendur 1: 2. – 4. maí (helgarnámskeið)
Byrjendur 2: 11. maí – 1. júní (4 vikur) Kennt í Kramhúsinu á sunnudögum kl. 16.15-17.30
Byrjendur 3: 29. apríl – 1. júní (6 vikur) Kennt í Danshöllinni Mjódd á þriðjudögum kl. 18.30-19.50
Verð:
Helgarnámskeið: 14.900 á mann
6 vikur: 20.400 á mann
4 vikur: 13.600 á mann
Beginner courses are taught at three levels, beginner level 1, 2 and 3. When the three beginner levels are completed, students move up to the intermediate level. Minimum participation for each level is based on 6 couples for the course to be held. If the groups are too small, beginners 2 and 3 are combined into one group and the instruction is adapted to those in the group.
Beginners 1
Intended for those who have never danced tango before or taken one or more try-out classes. In Beginners 1 we emphasize that you can dance right from the first day. We teach the basics and the most common steps, give an insight into how the connection between the follower and the leader works and how to follow the music.
Beginners 2
Is for those who have completed the first beginner’s course. Also suitable for those who have learned tango before and want to review. We continue with basics and learn more steps. We also teach rotational movements, e.g. half and full turn. Repetition is emphasized to gain more confidence in improvising with the basic steps. At this level we introduce vals and milonga.
Beginners 3
We continue to build the repertoire, as well as repeating what has already been learned. Emphasis is placed on following the music, and technique that make the dance easier.
Teaching period January – April 2025
Beginners 1: March 14 – 16 (weekend course)
Beginners 2: 23. March – 13 April (4 weeks) in Kramhusid on Sundays at 16.15-18.30
Beginners 3: March 4 – April 15 (7 weeks) in Danshöllin Mjódd, on Tuesdays at 18.30-19.50
Price:
7 weeks: 23.800 per person
4 weeks: 13.600 per. person