30 ára afmælishátíð

Lífið er tangó – hátið

Hátíð í tilefni af 30 ára tangódansafmæli Bryndísar og Hany, 2.–4. október 2026

Hátíðin Lífið er tangó er haldin til að fagna 30 árum af dansi og tónlist – ástríðu sem varð að atvinnu Bryndísar og Hany og hefur mótað líf þeirra sem og ótal annarra listamanna um allan heim. Af því tilefni verður efnt til þriggja daga hátíðar þar sem dans, tónlist og samvera þeirra sem elska tangó eru í forgrunni.

Á dagskránni verða tvö þriggja daga námskeið fyrir nýja og reynda dansara, milonga á föstudagskvöldi og hátíðarkvöld á laugardegi með uppákomum, tangósýningum og tango-DJ sem spilar fram á nótt.

Sérstakir gestir eru dansararnir Sabrina Veliz og Alejandro Lencina frá Buenos Aires, sem sem eru alþjóðlega viðurkennd sem dansarar og kennarar í fremsta flokki. Sabrina og Alejandro munu kenna á námskeiðum hátíðarinnar og sýna á hátíðarkvöldinu ásamt Bryndísi og Hany.

Dagskrá:

Föstudagur 2. október Kramhúsið

Námskeið 1a (Intermediate) 17.00-18.30
Námskeið 2a (Advanced) 18.45-20.15 

Milonga El Cramo 21.00-24.00 Dj (tba)

Laugardagur 3. október – Iðnó

Námskeið 1b  (Intermediate)13.00-14.30
Námskeið 2b (Advanced) 14.45-16.15 

Hátíðarmilonga – Iðnó
19:00–20:30 Sameiginlegur kvöldverður – hlaðborð með fjölbreyttu úrvali rétta
20:30–00:30 Milonga
DJ: (tilkynnt síðar)
Stutt hátíðardagskrá í tilefni af 30 ára afmæli
Lifandi tónlist
Sýningar: Sabrina & Alejandro, Bryndís & Hany

Sunnudagur 4. október Kramhúsið

Námskeið 1c (Intermediate) 13.00-14.30
Námskeið 2c (Advanced) 14.45-16.15 

Hátíðarnámskeið

Kennarar: Sabrina & Alejandro (námskeið 1 og 2)

Hvert námskeið samanstendur af þremur 1,5 klukkustunda tímum sem fara fram á þremur samfelldum dögum.

Þú getur skráð þig ásamt dansfélaga þínum í:

  • Eitt námskeið, eða
  • Tvö námskeið, eða
  • Stóra pakkann, sem innifelur bæði námskeiðin og báðar hátíðarmilongurnar.

Nánari upplýsingar um þemu námskeiðanna verða kynntar síðar.

Stig

Námskeið 1 – Miðstig
Hentar dönsurum með að minnsta kosti 6 mánaða reynslu af tangó.

Námskeið 2 – Framhaldsstig
Hentar dönsurum með 2–3 ára eða meiri reynslu af tangó.

Staðsetningar

Kramhúsið – Skólavörðustígur 12
(Inngangur frá Bergstaðastræti, við hliðina á Kramber, inn um portið.)

Iðnó – Vonarstræti 3

Verð (á mann)

  • Tvö námskeið (6 × 1,5 klst.) – 32.000 kr.
  • Eitt námskeið (3 × 1,5 klst.) – 18.500 kr.
  • Milonga föstudaginn 2. október – 2.000 kr.
  • Milonga laugardaginn 3. október – 5.500 kr.
  • Stóri pakkinn: Tvö námskeið og báðar milongurnar – 36.500 kr.

Stóri pakkinn býður upp á besta verðið og innifelur bæði námskeiðin (alls 9 kennslustundir) ásamt aðgangi að báðum hátíðarmilongunum fyrir 36.500 kr. á mann.

SKRÁNING / REGISTRATION