Einkatímar gefa þér tækifæri til að fá persónulega leiðsögn og vinna markvisst að eigin framförum. Kennslan er sniðin að þinni getu, þínum óskum og markmiðum. Þú færð meiri athygli, nákvæma endurgjöf og tækifæri til að dýpka skilning þinn á tækninni og njóta tangósins enn betur.
Í einkatíma er einn kennari og einn nemandi eða par og stendur í um 55 mín. Hægt að kaupa stakan einkatíma eða klippikort með x5 eða x10 tímum.
Tímar sem hægt er að velja: Fimmtudagar kl. 14, 15 eða 16 Föstudagar kl. 14, 15, 16 eða 17 Ef þessir tímar passa þér ekki, sendu tölvupóst á bryndis@tango.is
Verð á einkatímum: Stakur tími: 16.500,- (einn nemandi eða par) x5 tíma klippikort: 78.375,- (5% afsláttur) x10 tíma klippikort: 148.500,- (10% afsláttur)