Byrjendur

Þriggja daga byrjendanámskeið, 19.-21. águst 2026

Lærðu grunnatriði í tangó og algengustu skref á þremur dögum. Þétt og skemmtilegt námskeið þar sem kennt er tvo tíma á dag þrjá daga í röð.

Kennslan fer fram í Danshöllinni Mjódd mið. 19. og fim 20. ágúst kl. 17.30-19.30 og fös. 21. águst kl. 17-19.

Ætlað þeim sem hafa aldrei dansað argentínskan tangó áður eða tekið einn eða fleiri kynningartíma.

Á fyrsta byrjendanámskeiði leggjum við áherslu á að þið getið dansað strax frá fyrsta degi. Við kennum grunnatriði tangósins og algengustu skref, veitum innsýn inn í hvernig samdans fylgjanda og leiðanda virkar vel og grunnatriði þess að fylgja tónlistinni. 

Skráning með dansfélaga.
Verð: 18.000,-  á mann

Lágmarksþátttaka svo námskeið sé haldið miðast við 6 pör. 

Skráðu þig hér

NÝTT! Upprifjunar- og framhaldsnámskeið fyrir byrjendur hefst 23. ágúst, 2026

Námskeið fyrir þau sem hafa lokið fyrsta byrjendanámskeiði sem vilja rifja upp og jafnframt læra aðeins meira. Kjörið tækifæri til að byrja aftur að dansa eftir nokkurt hlé.

Kennt í Kramhúsinu á sunnudögum kl. 14.40-16.00, frá 23. ágúst.- 27. september (6 vikur)

Á fyrsta byrjendanámskeiði lærir fólk mikið en svo verður oft erfitt að finna tíma til að æfa sig og halda því við. Vegna fjölda áskoranna bjóðum við núna upp á upprifjunar- og framhaldsnámskeið sérstaklega fyrir ykkur.

Á þessu námskeiði rifjum við upp grunninn í tangó, kennum örfá ný skref og kynnum einnig grunn í vals og milonga.

Skráning með dansfélaga.
Verð: (6 vikur), 21.900 á mann

Skráðu þig hér